Hæ.
Var búin að lofa að setja inn myndir af tryllitækinu og geri það hér með. Þessi bíll er dásamlegur og ég það að spara fyrir honum öll árin borgar sig sko margfalt í ánægju á hverjum degi!
Á myndunum sjást líka fallegu haustlitirnir sem eru að koma í ljós núna. Verst að myndgæðin eru léleg því þetta er tekið á símann minn, en ég skal setja inn betri myndir þegar ég er komin með almennilega myndavél.
Annars er allt fínt að frétta. Var að koma af vakt og á 2 eftir í þessari viku. Svo hægist aðeins á vöktunum næstu 4 vikurnar þar á eftir.
Njótið tilverunnar, til þess er hún!
Melkorka.
- Takið eftir haustlitunum.
- Vígalegur!
- Flottur!
- Á Dover Road (heima)
- Fallegt tré.





Þetta er náttla bara töff bíll… og vá, þvílíkir litir á trjánum! Ótrúlega fyndið að sjá þau svona á litinn þegar allt í kringum þau er enn svo skærgrænt ennþá. Er grasið þarna kannski grænt allan ársins hring?
Knús sæta, og vonandi nýturðu frítímans á næstu vikum
Hólmfríður
By: Hólmfríður on október 12, 2008
at 11:23 pm
blogga meira, blogga meira
By: Þóra Marteins on október 26, 2008
at 3:07 pm
jæja sælll!! aðeins of flottur bíll, liturinn passar akkúrat við haustlitina
vertu dugleg að blogga, okkur finnst gaman að fylgjast með þér
(sérstaklega ömmu haha) Hlakka til að koma með þér hring ef við förum bráðum út i heimsókn til þín!
kveðja þín Ingibjörg
By: Ingijbörg Þ on október 30, 2008
at 2:15 pm